- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Friðþjófur Helgi Karlsson formaður, Birgir Már Bragason, Hjördís Baldursdóttir, Marta Sigurðardóttir og Magnús Einþór Áskelsson.
Að auki sátu fundinn Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi, Rúnar Vífill Arnarson formaður íþróttabandalags Reykjanesbæjar og Íris Eysteinsdóttir ritari.
Sindri Kristinn Ólafsson boðaði forföll. Magnús Einþór Áskelsson sat fundinn fyrir hann.
Friðþjófur Helgi Karlsson formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar lagði fram bréf sem fyrirhugað er að senda til forsvarsfólks fv. Glímudeildar UMFN.
Íþrótta- og tómstundaráð samþykkir bréfið samhljóða.
Fundað var með menntaráði vegna erindis forstöðufólks frístundaheimila Reykjanesbæjar varðandi frístundaakstur.
Íþrótta- og tómstundaráð og menntaráð taka undir áhyggjur forstöðufólks frístundaheimila hvað varðar fyrirkomulag frístundaakstursins, sér í lagi að sækja börnin af æfingum. Umræður fóru fram um málið og leggja ráðin til að samþykkt verði í bæjarstjórn breytt fyrirkomulag frístundaakstursins á þá leið að börn verði ekki sótt til baka eftir æfingar. Mikil áhersla var lögð á að aðrar lausnir væru skoðaðar samhliða til að koma til móts við foreldra ásamt því að kynna málið vel fyrir þeim. Lagt var til að breytt fyrirkomulag taki gildi frá og með 10. febrúar 2024 með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13.00. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 9. janúar 2024.