- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Eva Stefánsdóttir formaður, Hjördís Baldursdóttir, Marta Sigurðardóttir, Sindri Kristinn Ólafsson og Jóhann Gunnar Sigmarsson.
Að auki sátu fundinn Rúnar Vífill Arnarson formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar, Frosti Kjartan Rúnarsson fulltrúi ungmennaráðs og Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi sem jafnframt ritaði fundargerð.
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs boðaði forföll.
Ágústa Guðmarsdóttur, fjármálastjóri Ungmennafélags Njarðvíkur, mætti á fundinn og gerði grein fyrir fjármálum félagsins og því starfi sem hún er að inna af hendi fyrir félagið.
Íþrótta- og tómstundaráð þakkar Ágústu Guðmarsdóttur, fjármálastjóra Ungmennafélags Njarðvíkur, fyrir greinargóða kynningu.
Samningurinn um umsjón og rekstur á Fimleikaakademíunni lagður fram og samþykktur.
Samningurinn um eflingu barna- og ungmennastarfs Fimleikadeildar Keflavíkur lagður fram og samþykktur.
Reykjanesbær auglýsir eftir umsóknum um styrki til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum þar sem fram fer menningar-, íþrótta-, tómstunda- og/eða mannúðarstarfsemi sem er rekin í almannaþágu eða þágu æskulýðs.
Heimild sveitarfélaga til undanþágu frá greiðslu fasteignaskatts er að finna í 2. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
Styrkur til greiðslu fasteignaskatts getur að hámarki numið upphæð álagðs fasteignaskatts fyrir árið 2026. Styrkur til greiðslu fasteignaskatts af lóð reiknast í sama hlutfalli og af húsnæði. Allar nánari upplýsingar er að finna í reglum sveitarfélagsins um styrki til greiðslu fasteignaskatts.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2026. Með umsókn skal fylgja ársreikningur 2025, lög félagsins og stutt greinargerð um starfsemina. Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið skjaladeild@reykjanesbaer.is merktum „Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts“.
Reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts.
Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi fylgdi úr hlaði starfsáætlun íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsumála fyrir starfsárið 2026.
Hafþór Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir ýmis mál er varða málaflokkinn.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:00. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 17. febrúar 2026.