- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Eva Stefánsdóttir formaður, Hjördís Baldursdóttir, Magnús Einþór Áskelsson, Sindri Kristinn Ólafsson og Jóhann Gunnar Sigmarsson.
Marta Sigurðardóttir boðaði forföll, Magnús Einþór Áskelsson sat fundinn í hennar stað.
Að auki sátu fundinn Rúnar Vífill Arnarson formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar, Frosti Kjartan Rúnarsson fulltrúi ungmennaráðs, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs og Hafþór Barði Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi sem jafnframt ritaði fundargerð.
Eydís Rós Ármannsdóttir, verkefnastjóri skrifstofu velferðarsviðs, kynnti aðgerðaáætlun í innleiðingu farsældar barna í Reykjanesbæ árið 2026.
Íþrótta- og tómstundaráð samþykkir og þakkar Eydísi fyrir góða kynningu.
Jóhann Jóhannsson formaður Íþróttafélagsins Nes kynnti starfsemi félagsins.
Íþrótta- og tómstundaráð þakkar Jóhanni fyrir góða kynningu.
Fylgigögn:
Íslandsleikar Reykjanesbæjar 28.-29. mars 2026
Guðbjörg Björnsdóttir, fjármálastjóri Keflavíkur íþrótta- og ungmennafélags og Birgir Már Bragason framkvæmdastjóri félagsins mættu á fundinn og gerðu grein fyrir fjármálum félagsins og því starfi sem þau eru að inna af hendi fyrir félagið.
Íþrótta- og tómstundaráð þakkar Guðbjörgu og Birgi fyrir greinargóða kynningu.
Samningurinn lagður fram og samþykktur.
Samningurinn lagður fram og samþykktur.
Minnisblað lagt fram varðandi nýtingu á færanlegri skólastofu.
Íþrótta- og tómstundaráð leggur afar mikla áherslu á að færanleg skólastofa sem er að losna verði sett á svæðið vestan Nettóhallar.
Fylgigögn:
Minnisblað - færanleg skólastofa á gervigrasvöll vestan Nettóhallar
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:30. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 17. mars 2026.