- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Róbert Jóhann Guðmundsson formaður, Eysteinn Eyjólfsson, Guðbergur Reynisson, Gunnar Felix Rúnarsson og Helga María Finnbjörnsdóttir.
Að auki sátu fundinn Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi, Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur, Sveinn Björnsson byggingarfulltrúi, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála og Erna María Svavarsdóttir ritari.
Eydís Rós Ármannsdóttir, verkefnastjóri skrifstofu velferðarsviðs, kynnti aðgerðaáætlun í innleiðingu farsældar barna í Reykjanesbæ árið 2026.
Umhverfis- og skipulagsráð þakkar fyrir greinargóða kynningu á núverandi stöðu og aðgerðaráætlun um farsæld barna í sveitarfélaginu.
Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir mætti á fundinn og Andri Rafn Yeoman mætti á fundinn í gegnum fjarfundabúnað. Þau kynntu drög að deiliskipulagi fyrir Njarðarbraut milli Norður- og Suður Fitja f.h. Eflu verkfræðistofu.
Umhverfis- og skipulagsráð þakkar fyrir kynningu á valkostum og drögum að deiliskipulagi fyrir Njarðarbraut milli Norður- og Suður Fitja. Ráðið hefur rýnt framkomnar tillögur um fyrirkomulag gatnamóta, stíga og almenningssamgangna.
Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs leggur fram eftirfarandi bókun:
Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs fagnar því að unnið sé deiliskipulag fyrir þennan annasama vegkafla í heild sinni.
Yfirlit matsþátta og einkunnir eru lýsandi og gott er að fá skýra niðurstöðu sérfræðinga um úrlausnir á götunni.
Þá er einnig í lok skýrslunnar tiltekin tímaröð/forgangsröð framkvæmda þar sem horft er til heildarsamhengis og áfangaskiptingu sem taka mið af framtíðaruppbyggingu kerfisins í heild sinni.
Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs er sammála Eflu í greiningu sinni um að rétt sé og skynsamlegt að gera hringtorg við Víknaveg, við Vallarás, við Bergás og við Grænás og sammála hægri inn/út beygju við Bolafót/Sjávargötu. Að sama skapi er meirihlutinn sammála um skipulag gönguleiða- og þverana um Njarðarbraut en telur brýnt að kannaðir séu möguleikar þess að gera gönguleið á Fitjabakka einnig.
Meirihlutinn vill þó breyta forgangsröð framkvæmda á þennan hátt:
1. Hringtorg á Njarðarbraut við Bergás og gönguleið austan Njarðarbrautar frá Fitjum að Fitjabakka og örugga þverun gangandi á Njarðarbraut
2. Hringtorg við Njarðarbraut við Grænásveg
3. Hringtorg við Njarðarbraut við Víknaveg
4. Hringtorg við Njarðarbraut við Vallarás
5. Hægri inn/hægri út við Njarðarbraut við Bolafót/Sjávargötu
Meirihlutinn telur mikilvægt að bæta aðgengi Ásahverfis að Njarðarbrautinni og tryggja örugga þverun gangandi yfir Njarðarbrautina með gerð hringtorgs við Bergás. Grænás hringtorgið fer síðan næst af stað ásamt undirgöngum í Grænásbrekku fyrir gangandi og hjólandi umferð. Með þessu fyrirkomulagi er meirihlutinn að beina sjónum sínum að því að greiða fyrir umferð inn og út úr Ásahverfinu og samhliða því að leysa umferðaröryggismál fyrir hverfið.
Telur meirihlutinn þessa forgangsröðun vera skynsamlega en þegar hefur verið samþykkt í bæjarstjórn að byggja hringtorg við Bergás.
Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs vill á sama tíma beina því til bæjarráðs að rýna í kostnað við að setja upp, í það minnsta til bráðabirgða, hraðahindrun á Grænásvegi við Njarðarbraut til að efla öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda um gatnamótin. Lausn til framtíðar verða undirgöng undir Grænásbrekku en hægt er að bregðast við til skemmri tíma með hraðahindrun til að hægt sé að komast örugglega yfir þessi fjölförnu gatnamót.
Róbert J. Guðmundsson (B), Eysteinn Eyjólfsson (S) og Helga María Finnbjörnsdóttir (Y).
Formaður gerir fundarhlé kl. 10:40.
Fundur aftur settur kl. 11:00.
Minnihluti umhverfis- og skipulagsráðs leggur fram eftirfarandi bókun:
Sjálfstæðisflokkur situr hjá en eru þó sammála mikilvægi þess að Njarðarbraut verði deiliskipulögð og í meginatriðum sammála tillögum Eflu.
Sjálfstæðisflokki finnst mikilvægt að leggja aðaláherslu fyrst á hringtorg við Grænás/ Njarðarbraut og hanna í framhaldi tillögur að umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfarenda bæði við Grænás og Fitjabakka og ætti sá hluti því að vera í forgangi.
Guðbergur Reynisson (D) og Gunnar Felix Rúnarsson (D).
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir 3-0 að unnið sé deiliskipulag fyrir þennan vegarkafla með þessum forsendum og hvetur til þess að framkvæmdir hefjist hið fyrsta. Guðbergur Reynisson og Gunnar Felix Rúnarsson sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:04.