Ásbrú til framtíðar

Ásbrú til framtíðar

Reykjanesbær í samstarfi við Kadeco leggur fram til kynningar Framtíðarsýn fyrir Ásbrú til 2050. Rammahluti Aðalskipulags Reykjanesbæjar 2023- 2035, Alta nóvember 2023.

Ásbrú hefur gengið í gegnum miklar breytingar frá því að svæðið var yfirgefið af bandaríska hernum 2006 og er eitt mikilvægasta uppbyggingarsvæði í Reykjanesbæ. Staðsetningin, forsagan og aðstæður í hverfinu gera það einstakt á landsvísu og þó að víðar væri leitað. Með þessari forkynningu er öllum, sem láta Ásbrú sig varða, boðið að taka þátt í að hafa áhrif á þróun svæðisins til framtíðar.

Umsagnir berist eigi síðar en 31. janúar 2024 á netfangið skipulag@reykjanesbaer.is

Drög að rammaskipulagi.

Forkynning