- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Tillaga að deiliskipulagi fyrir lóð Holtaskóla sbr. uppdrátt Arkís arkitekta dags. 3. maí 2024. Skipulagssvæðið afmarkast af Skólavegi í norðri, Sunnubraut í austri, lóð Fjölbrautaskólans í suðri og grænu svæði í vestri. Helstu breytingar eru að ein hæð verður byggð ofan á útbyggingar á suðausturhorni skólans. Byggð verður tveggja hæða bygging á milli tveggja álma í porti sem vísar í norður. Byggingarmagn er aukið. Hámarksnýtingarhlutfall eftir stækkun verður 0,42 eða um 5700 m2 með A og B rýmum.
Umsagnarfrestur er frá og með 29. maí – 5. júlí 2024. Umsagnir berist á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar https://skipulagsgatt.is/ . Númer skipulagsverkefna í gáttinni er:
Nýtt deiliskipulag lóð Holtaskóla mál nr. 623/2024
Reykjanesbær 29. maí 2024