- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi 6. júní 2023 að auglýsa eftirfarandi deiliskipulagstillögur í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vallargata 7-11 breyting á deiliskipulagi
JeES arkitektar ehf. leggja fram f.h. lóðarhafa Rolf Johansen & Co ehf. tillögu að breytingu á deiliskipulagi gamla bæjarins í Keflavík með uppdrætti dags. 28. apríl 2023. Lóðirnar Vallargata 9, 9a og 11 verða sameinaðar í Vallargötu 9. Heimilt verður að byggja fjölbýlishús að hámarki tvær hæðir og ris með allt að 36 íbúðum, 45-75m2 að stærð. Bílakjallari er undir hluta lóðar. Auk þess verða gerðar minniháttar breytingar á gildandi deiliskipulagi á lóðunum Kirkjuvegi 8 og Klapparstíg 11, sem felst í breytingu fyrirkomulags húsanna innan lóðar.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 4. ágúst 2023. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á netfang skipulagsfulltrúa skipulag@reykjanesbaer.is eða á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12 Reykjanesbæ.
Tillögur verða einnig til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 15. júní til 4. ágúst 2023
Reykjanesbær 15. júní 2023
Skipulagsfulltrúi