- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Róbert Jóhann Guðmundsson formaður, Eysteinn Eyjólfsson, Guðbergur Reynisson, Gunnar Felix Rúnarsson og Helga María Finnbjörnsdóttir.
Að auki sátu fundinn Andrea Elísabet Ragnarsdóttir fulltrúi ungmennaráðs, Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi, Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur, Sveinn Björnsson byggingarfulltrúi, Anna Þóra Gísladóttir verkefnastjóri byggingafulltrúa, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála og Erna María Svavarsdóttir ritari.
Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs kynnti ársskýrslu umhverfis- og framkvæmdasviðs 2025.
Lagt fram.
Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs kynnti starfsáætlun umhverfis- og framkvæmdasviðs 2026.
Lagt fram.
Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðuna.
Lagt fram.
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 322. mál – Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030. Umsögn sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs og atvinnu- og hafnarsviðs lögð fram.
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir umsögn sviðsstjóra.
Fylgigögn:
Samgönguáætlun - 322. mál þingsályktunartillaga - umsögn Reykjanesbæjar
Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs kynnti þróunar- og samstarfssamning milli Reykjanesbæjar og Þórukots ehf.
Umhverfis- og skipulagsráð gerir ekki athugasemd við samstarfssamninginn.
Eysteinn Eyjólfsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Skipulagslýsing og vinnslutillaga að breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar. Breytingin felst í fjölgun íbúða á svæði M2-miðbær sbr. uppdrátt Kanon arkitekta og VSÓ Rágjöf dags 29. janúar 2026.
Umhverfis- og skipulagsráð heimilar að auglýsa skipulagslýsingu og vinnslutillögu að breyttu aðalskipulagi á svæði M2.
Fylgigögn:
M2-miðbær - skipulags- og matslýsing - aðalskipulagsbreyting
Samúel Torfi Pétursson f.h. Kadeco og Embla Vigfúsdóttir f.h. ÞYKJÓ kynna tillögu ÞYKJÓ að leiksvæðinu Hugarflugvöllur á Ásbrú.
Lagt fram.
Fylgigögn:
Hugarflugvöllur - skýrsla ÞYKJÓ
Anna Karen Sigurjónsdóttir sjálfbærnifulltrúi leggur fram tillögu að staðsetningu grenndarstöðva í Reykjanesbæ sbr. erindi dags. 2. febrúar 2026. Staðsetningar sem lagðar eru til eru við Elliðavelli/Bjarnaróló, Afreksbraut, Geirdal, áningarstað við Fitjar, hæfingastöðina Ásbrú og í Höfnum.
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir staðsetningar við Fitjar, Hæfingastöðina og í Höfnum. Grenndarstöðvar við Elliðavelli/Bjarnaróló og Afreksbraut er samþykkt að senda í grenndarkynningu.
Fylgigögn:
JeES arkitektar leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi f.h. bgb - ferðaþjónustu ehf. sbr. uppdrætti dags. 9. október 2025. Lagt er til að fjölga bílastæðum í bílageymslu um þrjú bílastæði og íbúðum um þrjár, frá 15 íbúðum í 18 íbúðir. Stækkun hússins verður með nýrri rishæð, á tveimur einingum af fimm, í samræmi við nærliggjandi mannvirki og komandi skipulag, þannig að samtenging við umhverfið verði sterkari. Að öðru leyti helst skipulagið óbreytt.
Erindi frestað, skortur er á rökstuðningi varðandi bílastæðahlutfall.
Fylgigögn:
Elfoss ehf. leggur fram erindi dags. 30. janúar 2026. Óskað er eftir að breyta byggingunni í 8 smáíbúðir.
Umhverfis- og skipulagsráðs samþykkir erindið með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 44. grein skipulagslaga málsgrein 2.
Ráðið heimilar að stytta tímabil grenndarkynningar, skv. 3. mgr. 44. greinar skipulagslaga, ef þeir sem hagsmuna eiga að gæta hafa lýst skriflega yfir með áritun sinni á kynningargögn áður en fjórar vikur eru liðnar að þeir geri ekki athugasemdir við skipulagstillöguna eða hina leyfisskyldu framkvæmd.
Fylgigögn:
Go7 ehf. óskar heimildar til að fjölga íbúðum í húsinu úr 10 í 17 sbr. breytingaruppdrátt Riss verkfræðistofu dags 9. desember 2025.
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir breytinguna með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 44. grein skipulagslaga málsgrein 2.
Ráðið heimilar að stytta tímabil grenndarkynningar, skv. 3. mgr. 44. greinar skipulagslaga, ef þeir sem hagsmuna eiga að gæta hafa lýst skriflega yfir með áritun sinni á kynningargögn áður en fjórar vikur eru liðnar að þeir geri ekki athugasemdir við skipulagstillöguna eða hina leyfisskyldu framkvæmd.
Fylgigögn:
Hafnarbakki 10 - aðaluppdráttur
Sótt er um stækkun á bílgeymslu sbr. aðaluppdrætti AVJ teiknistofu dags. 20. ágúst 2023. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti breytinguna á fundi dags 23. júní 2023, en þar sem ekki var sótt um byggingarleyfi innan árs sbr. 4. mgr. 44. gr. skipulagslaga fellur afgreiðslan úr gildi.
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 44. grein skipulagslaga málsgrein 2.
Ráðið heimilar að stytta tímabil grenndarkynningar, skv. 3. mgr. 44. greinar skipulagslaga, ef þeir sem hagsmuna eiga að gæta hafa lýst skriflega yfir með áritun sinni á kynningargögn áður en fjórar vikur eru liðnar að þeir geri ekki athugasemdir við skipulagstillöguna eða hina leyfisskyldu framkvæmd.
Fylgigögn:
Nesvellir íbúðir ehf. leggja fram erindi dags 19. janúar 2026 um heimild til að breyta geymslurými í kjallara í 9 íbúðir.
Umhverfis- og skipulagsráð leggst ekki gegn fjölgun íbúða á reit, en tryggja þarf gæði íbúða m.t.t. dagsbirtu. Bent er á að bílastæðahlutfall er 0,6 bílastæði á íbúð. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir.
Íslandsturnar sækja um heimild til uppsetningar á fjarskiptastaur að Klettatröð 3 með erindi dags. 19. janúar 2026. Um er að ræða 16 m stálstaur á undirstöðu. Búnaður fjarskiptarekenda er annars vegar í 13 m2 tengiskúr á jörð og hins vegar á staur ofanverðum.
Umhverfis- og skipulagsráð telur að breytingin á deiliskipulagi varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda og samþykkir því breytinguna skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 3.
Fylgigögn:
Verkfræðistofa Suðurnesja með erindi dags. 29. janúar 2026 f.h. Reykjaneshafnar óskar eftir breytingu á umferðarmerkingum við Bakkaveg, Víkurbraut og Hrannargötu. Tillaga að breytingum er svohljóðandi: Stöðvunarskylda verði sett á Bakkaveg þar sem nú er biðskylda. Stöðvunarskylda verði sett á Víkurbraut þannig að umferð á Bakkastíg hafi réttinn.
Erindi hafnað. Þar sem um er að ræða tímabundið verkefni við Njarðvíkurhöfn getur umhverfis- og skipulagsráð ekki samþykkt breytingu á umferðarmerkingum en sveitarfélagið ásamt framkvæmdaaðila, Heilbrigðiseftirliti og lögreglu sameinist um að greiða leiðina og bæta merkingar.
Bárusker ehf. sækir um lóðina Fuglavík 31.
Lóðarumsókn samþykkt.
Fundargerð 394. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa þann 13. janúar 2026.
Lagt fram.
Fundargerð 140. fundar skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar þann 28. janúar 2026.
Lagt fram.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:46. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 17. febrúar 2026.