Viðurkenningar í umhverfismálum 2023

Ljósmyndir fengnar frá Víkurfréttum
Ljósmyndir fengnar frá Víkurfréttum

Umhverfis- og skipulagsráð veitir árlega viðurkenningar í umhverfismálum og hvetur alla íbúa og fyrirtæki til þess að leggja sitt að mörkum þegar kemur að umhverfismálum og snyrtilegri ásýnd sveitarfélagsins. Íbúum gafst kostur á að tilnefna þá sem þeim þykir skara framúr og voru tilnefningar í ár fjölmargar og virkilega úr vöndu að velja.

Í stýrihópnum í ár voru þau Jóhann Gunnar Sigmarsson og Sigrún Inga Ævarsdóttir. Þeim til halds og trausts voru þær Margrét Lilja Margeirsdóttir og Berglind Ásgeirsdóttir, starfsmenn umhverfis- og framkvæmdasviðs.

Hafnargata 74
Viðurkenning fyrir vel heppnað viðhald á eldra húsi.

Guðrún Inga Sigurðardóttir og Robert Qyra

Hafnargata 74 er fyrirmynd fyrir nærliggjandi hús.


Hraunsvegur 6
Viðurkenning fyrir fallegan og velviðhaldinn einkagarð, með fjölbreyttu plöntu- og gróðurúrvali.

Sigurjón Þórðarson

Hraunsvegur 6 hefur hlotið umhverfisviðurkenningu tvisvar sinnum áður. Garðurinn er prýði fyrir hverfið og er ævintýralegt að sjá fjölbreytt plöntu- og gróðurúrval.


Dalsbraut 2
Viðurkenning fyrir snyrtilega fjölbýlishúsalóð með djúpgámum.

Friðjón, fyrir hönd Birkidals ehf.

Tilnefning kom frá íbúa Reykjanesbæjar.


Þrastartjörn 15
Viðurkenning fyrir mjög fallegan og snyrtilegan garður.

Lárus Óskar Lárusson og Guðleif Arnardóttir

Tilnefning kom frá íbúa Reykjanesbæjar og hlaut tilnefning flest atkvæði.


Skógarbraut 946
Viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi fyrirtækis.

Pálmi Freyr Randversson og Bryndís Lúðvíksdóttir, fyrir hönd Kadeco.

Framkvæmdir á lóð Skógarbrautar 946 er fyrirmynd fyrir önnur fyrirtæki á Ásbrú.


Bergrún Ósk Ólafsdóttir

Viðurkenning fyrir frumkvæði í sjálfbærnimálum og þátttöku í hringrásarhagkerfinu.

Bergrún Ósk Ólafsdóttir, sem starfaði áður sem verkefnastjóri Hjálpræðishersins í Reykjanesbæ, hefur verið í fararbroddi í sjálfbærnimálum. Þegar hún tók setti upp textílverkefni Hjálræðishersins var um 30% af textíl í endurnýtingu til sölu í verslunina og um 70% sem féll í landfyllingu erlendis. Eftir að verkefnið hófst þá varð sá textíll sem féll í landfyllingu um 30%. Textílinn var nýttur sem endurhönnun sem varð að söluvöru í versluninni.

Bergrún Ósk setti upp verkefnið Mataraðstoð gegn matarsóun árið 2021 sem varð til þess að samstarfssamningur var gerður árið 2022 við Samkaup. En Samkaup gefur Hjálpræðishernum mat og aðrar nauðsynjavörur sem til falla. Sjálfboðaliðar hjá Hjálpræðishernum á Ásbrú elda svo úr því alla virka daga þar heitan mat og gefa áfram mat til þeirra sem þurfa á aðstoðinni að halda.

Bergrún Ósk hlaut styrk Andrýmis í sumar og bar verkefnið heitið „Leiðin að Hernum“. Markmið verkefnis var að stuðla að virkni og sjálfbærni, ásamt því að bæta umhverfisásýnd á Ásbrú. Verkefnið hefur það að leiðarljósi að endurnýta sem mest af hráefni og stuðla þar með minnkun á kolefnissporum og gefa hlutum sem annars væri hent nýtt líf.

Bergrún vildi þar með sýna að með því að gefa hráefnum nýtt líf samhliða því að efla þátttakendur í virkni, valdefla þau og styrkja í leik og starfi væri markmiði verkefnanna náð. En til verkefnisins gáfu einnig BYGG og Dalsgarður gjafir til verkefnisins sem nýttust afar vel.

Bergrún Ósk starfar í dag sem verkefnastjóri umhverfis og samfélags hjá Samkaup.