Opnun sýninga hjá Listasafninu

Verið velkomin á opnun tveggja sýninga hjá Listasafni Reykjanesbæjar, laugardaginn 26. nóvember kl. 14:00.  Við sama tilefni verður Súlan, menningarverðlaun Reykjanesbæjar, afhent

Þetta eru annars vegar sýningin Línur, flækjur og allskonar sem er einkasýning Guðrúnar Gunnardóttur. Hins vegar er þetta sýningin You Are Here / Jesteś tutaj / Du er her / Þú ert hér,  eftir Vena Naskręcka  og Michael Richardt.

Allir velunnarar menningarlífs í Reykjanesbæ eru boðnir velkomnir til að gleðjast með okkur yfir blómlegu menningarlífi og þiggja veitingar.  

 

 

Línur, flækjur og allskonar

Þráðlist eins og sú sem Guðrún Gunnarsdóttir ástundar er ótvírætt þrívíddarlist í klassískum skilningi, þótt listakonan gangi í berhögg við ýmsar siðvenjur sem fylgt hafa slíkri list frá örófi alda. Til að mynda hirðir hún ekki um að setja verk sín á stalla, og þar með bæði upphefja þau og staðsetja utan seilingar. Þess í stað fá þau að leika lausum hala í námunda við okkur, hanga ofan úr lofti, fikra sig ofur varlega upp og niður veggi, eða mynda smágerðar lífrænar einingar niður við fótskör. Og í stað þess að kalla á athygli, eins og stallsettir skúlptúrar óneitanlega gera, eru verk Guðrúnar gerð til að birtast okkur eins og fyrir tilviljun, jafnvel koma þægilega á óvart, ekki ósvipað og ljóðlínur með óvæntu niðurlagi.

En þótt Guðrún hafni sumum forsendum hins klassíska skúlptúrs, tekur hún heilshugar undir dálæti klassískra þrívíddarlistamanna á eðlisþáttum efnisins. Meðan hún einskorðaði sig við ullarband eða mjúklegan hör, lét hún þyngdaraflið gjarnan stjórna framvindunni, þetta var tími lóðréttra þráða sem runnu niður ímynduð fjöll, eins og lækjarsytrur, þéttir eða gisnir, gildir eða þvengmjóir. Guðrún reyndi með ýmsum hætti á þanþol þessa bands, paraði það við tágar, pappír, tré og önnu náttúruleg efni. Seinna kom til skjalanna alls konar vír, sem gerði listakonunni kleyft að storka þyngdaraflinu, teygja verk sín út í rýmið, ýmist staka búta eða misjafnlega þétta efnismassa. Við það verður sjálft rýmið þáttakandi í þessum verkum í ríkara mæli en áður, vírinn beinlínis seilist eftir því, umlykur það, bútar það niður eða gefur því frelsi.

Við stöndum andspænis einhverju sem jaðrar við hugsanaflutning með handafli, tilfæringar á örþráðum án upphafs og endis uns eftir stendur myndheimur einhvers staðar til hliðar við þann heim sem við byggjum, en er þó þess umkominn að varpa nýju ljósi á hann. Og við sjáum í byggingu hans, þráð fyrir þráð, ávæning af því hvernig menning tekur á sig mynd. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson.

 

You Are Here / Jesteś tutaj / Du er her / Þú ert hér

Vena og Michael eru gjörningalistamenn og mun sýningin verða vitnisburður um hvar þau eru stödd á þessum ákveðna tímapunkti og skrásetning á því sem þeim er nú hugleikið. Þau eru hér og nú, erlendir ríkisborgara á Íslandi, að setja mark sitt á Listasafn Reykjanesbæjar þar sem þau ríkja í ákveðinn tíma.

Þú ert hér gefur til kynna að þú sért á ákveðnum tímapunkti á því ferli sem ævi þín er. Vena og Michael fluttu bæði frá heimalöndum sínum, Póllandi og Danmörku, fyrst til Hollands og síðar Írlands en það er hér sem leiðir þeirra fyrst skarast. Þú ert hér snýst meðal annars um hvernig við jarðtengjum líkama okkar á ákveðnum stað í tíma og rúmi. Vena fer áfram með hægum hreyfingum og Michael með hröðum, síendurteknar hreyfingarnar minna á kóreógrafíu eða skipulagðar danshreyfingar ætlaðar til að valda umskiptum. Þau eru hér til þess að hafa áhrif á umhverfi sitt og þeim er umhugað um hvað þau skilja eftir sig. Vena er að horfa til framtíðar mannkynsins og Michael horfir inn á við.

Vena Naskręcka (1986) vinnur að myndlist á þverfaglegan hátt, með gjörningum, skúlptúr, fundnum hlutum og myndbandi, og byggja viðfangsefni hennar meðal annars á heimspeki, taugavísindum, fötlunarfræði og tækni. Naskręcka miðlar þeim með líkama sínum, en hún lítur á hann sem boðleið fyrir sjónræn, tilfinningaleg og vitsmunaleg samskipti. Naskręcka hefur haldið einkasýningar og sýnt á samsýningum víða um Evrópu. Hún hlaut Klaas Dijkstra Academieprijs fyrir útskriftarverkefni sitt frá Hanze University Groningen og árið 2018 vann til verðlauna fyrir verkefnið the Armor Verte initiative á Wawa Design Festival í Warsaw, Póllandi. Naskręcka er útskrifuð með MA-gráðu í myndlist frá CIT Crawford College of Art & Design, Cork, Írlandi, BA-gráðu í myndlist frá Hanze University Groningen – Academy Minerva, Hollandi og lærði keramík í the Jacek Malczewski School of Fine Arts í Czestochowa, Póllandi. Hún er fædd í Czestochowa, Póllandi, hún býr og starfar í Reykjanesbæ.

Michael Richardt (1980) er gjörningalistamaður sem sérhæfir sig í gjörningum byggðum á tíma og lengd. Michael hugsar út frá mæðraveldi og skapar verk með sjálfþróuðu kerfi byggðu á litrófi. Árið 2017 var heimildarmyndin My Mother Is Pink, sem fjallar um kynslóðalistaverk eftir Richardt RULE PINK, sýnd á CPH:DOX hátíðinni í Kaupmannahöfn. Myndin var tilnefnd í flokknum Best Art Documentary á Sheffield Documentary Film Festival og árið 2019 hlaut hún Outstanding Excellence Award í Rajastan á Indlandi. Nýlega hafa verk hans verið sýnd hjá Kunsthal Nikolaj og í Norræna húsinu á Íslandi. Richardt útskrifaðist með MFA-gráðu í sviðslistum frá Listaháskóla Íslands. Hann stundaði nám við Amsterdam University of the Arts, Amsterdam, Hollandi, Codarts Circus School, Rotterdam, Hollandi og klassíska olíumálun hjá listamanninum Poul Winther, Hjørring, Danmörku. Richardt hefur unnið sem dansari fyrir We Go, komið fram á Copenhagen Jazz Festival, Danmörku, og sem leikari í „Polishing Iceland“ með Reykjavík Ensemble í Tjarnarbíói. Richardt er fæddur í Danmörku og á einnig ættir að rekja til Níger, hann býr og starfar í Reykjavík.

Sýningarstjóri er Helga Arnbjörg Pálsdóttir. You Are Here er styrkt af Safnasjóði. Listamennirnir eru styrktir af Myndlistarsjóði og Statens Kunstfond.

Súlan

Við sama tilefni verður Súlan, menningarverðlaun Reykjanesbæjar, afhent. Súlan er veitt árlega einstaklingi eða fyrirtæki sem unnið hefur vel að menningarmálum í bæjarfélaginu