Verið velkomin í Sjómannamessu!

Sjómannamessa verður haldin á vegum Njarðvíkursóknar á sjómannadaginn 7. júní kl. 11:00 í Bíósal Duus safnahúsa.

Félagar úr Kór Njarðvíkurkirkju leiða söng við undirleik Rafns Hlíðkvist organista. Sr. Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir þjónar. Við lok stundar verður gengið að minnismerki sjómanna við Hafnargötu og þar lagður blómakrans frá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur og nágrennis og Félagi skipstjórnarmanna. Kaffi og nýsteiktar kleinur í boði Duus safnahúsa og Njarðvíkurkirkju. Að athöfn lokinni gefst gestum kostur á að skoða bátalíkön Gríms Karlssonar í Bryggjuhúsi auk annarra sýninga í húsunum.

Allir sjómenn og fjölskyldur þeirra eru boðin sérstaklega velkomin við messuna.