30 þúsund tré og plöntur gróðursett í sumar

Um 30 þúsund tré og plöntur voru gróðursett í Reykjanesbæ í sumar. Þar af voru um 10 þúsund tré gróðursett í Innri-Njarðvík í tengslum við verkefnið Smáskógar og um 20 þúsund plöntur á skógræktarsvæðum bæjarins.

Smáskógar í Innri-Njarðvík

Aukin áhersla hefur verið lögð á gróðursetningu í Innri-Njarðvík í samræmi við óskir íbúa. Því var auknu fjármagni varið til verkefnisins Smáskógar. Fyrir verkefnið voru opin útivistarsvæði, þar sem ekki er gert ráð fyrir uppbyggingu, skilgreind og kortlögð. Markmiðið er að koma þar upp minni trjálundum og efla gróður í nærumhverfi íbúa.

Bæjarstarfsmenn gróðursettu um 10 þúsund bakkaplöntur á 11 stöðum í Innri-Njarðvík í vor. Mest var gróðursett af furu en einnig greni og ösp. Gróðursett var meðal annars í Engjadal, Trönudal, Einidal, við Stapaskóla, Tjarnarbraut, Tjarnabakka, við Akurskóla, Háseylu, Geirdal og Dalsbraut.

Samhliða verkefninu Smáskógar var einnig unnið að gróðursetningu á skógræktarsvæðum Reykjanesbæjar þar sem um 20 þúsund plöntur voru gróðursettar í sumar.

Alls voru því um 30 þúsund tré og plöntur gróðursett í Reykjanesbæ í sumar.

Með þessari umfangsmiklu gróðursetningu verður nærumhverfi íbúa grænna og fjölbreyttara á komandi árum. Trén sem gróðursett voru í sumar munu vaxa og dafna með bænum og skapa enn betra umhverfi til útivistar og samveru.