390 umsóknir hafa þegar borist um vinnuskólan. Fullt á A tímabil

Enn er pláss í B-tímabil Vinnuskólans.
Enn er pláss í B-tímabil Vinnuskólans.

Alls hafa 390 ungmenni sótt um starf í Vinnuskóla Reykjanesbæ í sumar en þegar er orðið fullt á A tímabil. Einungis er því hægt að sækja um vinnu á B tímabili sem er frá 1. júlí - 29. júlí.

Nemendur vinnuskólans voru 500 síðasta sumar og hefur þeim fjölgað mikið í kjölfar efnahagsþrenginga.

Sótt er um á vef Reykjanesbæjar. Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.

Verið að vinna að undirbúning verkefna fyrir ungt fólk í atvinnuleit og verða þau kynnt síðar.