3ja mánaða rekstraruppgjör Reykjanesbæjar sýnir betri afkomu en áætlun gerði ráð fyrir

Reykjanesbær hefur nú gengið frá rekstraruppgjöri fyrir fyrstu 3 mánuði ársins 2010 sem meðal annars er unnið fyrir Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga.

Afkoma bæjarsjóðs var mun betri en áætlun gerði ráð fyrir.
Rekstrarafgangur bæjarsjóðs fyrstu 3 mánuðina er 65 milljónir króna en áætlanir höfðu gert ráð fyrir að rekstrarhalla á þessu tímabili upp á 277 milljónir króna.

Tekjur bæjarsjóðs:
Skatttekjur voru 191 milljónum hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir eða 1.724 milljónir.
Aðrar tekjur eru í samræmi við áætlanir eða 376 milljónir króna.

Gjöld bæjarsjóðs:
Rekstrargjöld voru 85 milljónum lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir eða 1.972 milljónir króna.

Fjármagnsliðir hjá bæjarsjóði:
Fjármagnsliðir voru 70 milljónum lægri en áætlanir gerður ráð fyrir eða 63 milljónir króna.

Reykjanesbær hefur greitt upp annað af tveimur erlendu lánum sem bærinn var með og er þvíeinungis með eitt erlent lán. Önnur lán bæjarsjóðsins eru flest hjá lánasjóði sveitarfélaga.