Aðventan í Reykjanesbæ

Safn jólamynda úr Reykjanesbæ.
Safn jólamynda úr Reykjanesbæ.

Aðventan í Reykjanesbæ

Framundan er aðventan með öllum sínum dásemdum, þegar fólk keppist við að skapa sér tilefni til notalegra samverustunda í svartasta skammdeginu, kveikir falleg ljós, stingur góðgæti í munn og nærir bæði líkama og sál.

Ljósahús og ljósagluggi Reykjanesbæjar

Reykjanesbær lætur ekki sitt eftir liggja og heldur fast í þær góðu hefðir, gamlar sem og nýrri, sem segja má að séu samtvinnaðar lífi fólks hér í bæ. Að venju verður staðið fyrir vali á Ljósahúsi Reykjanesbæjar sem gert hefur verið allar götur síðan árið 2000. Það er óhætt að segja að viðmiðin hafi verið sett af þeim sem fyrst hlutu þessar viðurkenningar því nú má sjá hús skreytt af miklum metnaði og smekklegheitum víðs vegar um bæinn og „ljósarúnturinn“ orðinn ómissandi hlutur af jólahefðinni. Í ár fer valið fram með nýju sniði þar sem bæjarbúar sjálfir velja ljósahúsin í stað sérstakrar nefndar en þetta verður kynnt rækilega í Víkurfréttum. Verðlaunin verða síðan afhent í Duushúsum mánudaginn 17. desember kl. 18:00. Þá verður einnig veitt viðurkenning fyrir Ljósagluggann en sú viðurkenning er veitt fyrir fallega skreyttan verslunarglugga.

Ljósin tendruð

Laugardaginn 1. desember kl. 17:00 verða ljósin tendruð á vinabæjarjólatrénu frá Kristiansand í Noregi. Sú athöfn fer að venju fram á Tjarnargötutorgi með stuttri tónlistar- og söng dagskrá. Sendiherra Noregs á Íslandi afhendir tréð og nemandi úr 6. bekk Akurskóla tendrar ljósin. Jólasveinar koma í heimsókn og dansa í kringum jólatréð með börnunum og gestum verður boðið upp á rjúkandi kakó og ilmandi piparkökur.

Bókakonfekt

Sunnudaginn 2. desember kl. 14:00 verður boðið upp á Bókakonfekt í listasal Duushúsa. Bókakonfektið er árlegur menningarviðburður á vegum Bókasafns Reykjanesbæjar, í samvinnu við menningarfulltrúa bæjarins og Eymundsson og styrkt af menningarráði Suðurnesja. Þar gefst bæjarbúum kostur á að hlýða á upplestur höfunda úr nýjustu jólabókunum innan um einstaklega falleg málverk Þorbjargar Höskuldsdóttur. Þá flytja Jólaseríurnar tónlist. Meðal þeirra rithöfunda sem lesa upp úr verkum sínum eru Steinunn Sigurðardóttir, Auður Ava Ólafsdóttir og Marta Eiríksdóttir.

Jól á bókasafninu

Þann 13. og 14. desember munu starfsmenn Bókasafnsins og menningarsviðs Reykjanesbæjar lesa upp úr nýjum bókum á Nesvöllum fyrir gesti og gangandi.

Dagana 6. -15. desember tekur Bókasafn Reykjanesbæjar þátt í alþjóðlegu bréfamaraþoni Amnesty International sem gefur almenningi kost á að skrifa undir kort í þágu þolenda mannréttindabrota. Tilbúin bréf til stjórnvalda liggja frammi fyrir gesti. Þetta er í sjöunda sinn sem slíkt bréfamaraþon er haldið á Íslandi en í fyrra voru send rúmlega 4000 bréf og kort til stuðnings fórnarlömbum mannréttindabrota um heim allan. Samtímis munu fara fram bréfamaraþon í Amnesty-deildum í yfir 60 löndum víða um heim.

Þrettándinn

Á þrettándanum, 6. janúar kl. 18:00, verða svo jólin kvödd með hefðbundum hætti, með þrettándagleði, álfabrennu og flugeldasýningu. Nánar verður fjallað um það síðar enda ástæðulaust að huga að lokum jólanna nú, þegar aðventan er rétt handan við hornið.