Áfram Reykjanesbær !

Útsvarslið Reykjanesbæjar ásamt bæjarstjóra.
Útsvarslið Reykjanesbæjar ásamt bæjarstjóra.

Reykjanesbær tekur að vanda  þátt í Útsvari, spurningakeppni sjónvarpsins og sendir sterkan hóp  eins og áður.   Í liðinu eru þau Baldur Guðmundsson og Hulda G. Geirsdóttir sem eru orðin okkur  að góðu kunn, enda tekið þátt í slagnum í nokkur ár og alltaf staðið sig vel.  Þriðji liðsmaðurinn er  ungliðinn Erik Ólaf Erikson, sem er þó ekki að taka sín fyrstu skref í spurningarkeppnum heldur var  hann lengi  verið öflugur í hinum ýmsu spurningakeppnum hér áður fyrr á árunum. 
Liðið hefur unnið ötullega að undirbúningi keppninnar síðustu vikur og hér má sjá hópinn ásamt bæjarstjóra sem kíkti við þegar liðið var við æfingar.  Fyrsti slagurinn verður 2. nóvember þegar Reykjanesbær mætir  liði Fljótsdalshéraðs og eru Reyknesingar hvattir til að fylgja hópnum í sjónvarpssal en þeir sem ekki komast með, munu  senda góðar hugsanir og baráttukveðjur.

Áfram Reykjanesbær!