Áfram Reykjanesbær! Mætum Akranesi í Útsvari - aftur!

Útsvarslið Reykjanesbæjar í sjónvarpssal.
Útsvarslið Reykjanesbæjar í sjónvarpssal.

Hið harðsnúna lið Reykjanesbæjar, skipað þeim Baldri Þóri Guðmundssyni, Huldu G. Geirsdóttur og Grétari Þór Sigurðssyni, mætir liði Akraness í annað sinn í röð n.k. föstudag, í 8 liða úrslitum spurningakeppni sveitarfélaganna. 

Eins og margir muna eflaust, tapaði Reykjanesbær naumlega fyrir liði Akraness í desember með 89 stigum gegn 108 stigum. Keppnin var jöfn og spennandi frá upphafi til enda og var það ekki fyrr en í blálokin sem úrslitin réðust.

Þar sem tvö stigahæstu tapliðin komust áfram í 8 liða úrslitin fór það svo að Reykjanesbær dróst aftur gegn Akranesi og á liðið því harma að hefna í þessari umferð og ljóst að allt getur gerst.

Við sendum baráttukveðjur til þeirra Baldurs, Huldu og Grétars og segjum Áfram Reykjanesbær!