Álagningarseðlar fasteignagjald nú einungis á rafrænu formi

Horft yfir Innri Njarðvíkurhverfi. Ljósmynd: OZZO
Horft yfir Innri Njarðvíkurhverfi. Ljósmynd: OZZO

Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda verða nú einungis á rafrænu formi og birtir á vefnum island.is og á íbúavef Reykjanesbæjar, mittreykjanes.is
Þó geta þeir sem þess óska fengið senda álagningar- og/eða greiðsluseðla með bréfpósti með því að hafa samband við þjónustuver Reykjanesbæjar í síma
421 6700 eða netfangið thjonustuver@reykjanesbaer.is

Greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda birtast eingöngu sem kröfur í netbanka og eru innheimtar þar, en greiðendur 76 ára og eldri fá þó áfram seðla.
Gjöld ársins dreifast á 10 gjalddaga sem eru fyrsta dag hvers mánaðar frá og með 1.febrúar.

Fasteignaeigendum er bent á boðgreiðslur með greiðslukortum og beingreiðsluþjónustu bankanna til hagræðis.

Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið thjonustuver@reykjanesbaer.is eða í síma 421 6700.