Álagningarseðlar fyrir árið 2020

Horft yfir skrúðgarð, Myllubakkaskóla og  næsta nágrenni. Ljósmynd: Oddgeir Karlsson
Horft yfir skrúðgarð, Myllubakkaskóla og næsta nágrenni. Ljósmynd: Oddgeir Karlsson

Tilkynning til eigenda fasteigna í Reykjanesbæ um álagningu ársins 2020.

Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda eru á rafrænu formi og birtir á íbúavef Reykjanesbæjar, mittreykjanes.is og vefnum island.is

Þó geta þeir sem þess óska fengið senda álagningar- og/eða greiðsluseðla með bréfpósti með því að hafa samband við þjónustuver Reykjanesbæjar í síma 421 6700 eða netfangið thjonustuver@reykjanesbaer.is

Greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda birtast eingöngu sem kröfur í netbanka og eru innheimtar þar, en greiðendur 76 ára og eldri fá þó áfram seðla.

Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda

Gjöld ársins dreifast á 10 gjalddaga sem eru fyrsta dag hvers mánaðar frá og með 1. febrúar.

Fasteignaeigendum er bent á boðgreiðslur með greiðslukortum og beingreiðsluþjónustu bankanna til hagræðis.

Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn í síma 421 6700 eða netfangið thjonustuver@reykjanesbaer.is