Álagningarskrá Reykjanesbæjar liggur frammi á bæjarskrifstofunum

Álagningarskrá Reykjanesbæjar 2015.
Álagningarskrá Reykjanesbæjar 2015.
Álagningu opinberra gjalda árið 2015 lýkur í dag föstudaginn 24. júlí. Álagningarskrá Reykjanesbæjar verður lögð fram í dag í heild sinni og mun liggja frammi á bæjarskrifstofunum í 14 daga.

Kærufrestur er í 30 daga frá birtingu, vilji menn kæra álagninguna.