Allir með í heilsu- og forvarnarviku

Gengið upp stiga
Gengið upp stiga

Vikuna 5. - 11. október næstkomandi verður haldin Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ. Markmiðið með þeirri viku er að hlúa að verndandi heilsufarsþáttum með þátttöku allra bæjarbúa og draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingar geta staðið frammi fyrir á lífsleiðinni. Því er leitað til ykkar.  

  

Þema vikunnar í ár er heilsulæsi ! 
Nú þegar Reykjanesbær hefur farið af stað með samfélagsverkefnið Allir með! þá hvetjum við enn frekar alla til þess vera með í Heilsu- og forvarnarvikunni. Allir með! snýr einmitt að því að huga að vellíðan bæjarbúa, þá sérstaklega barna, með virkri og heilsusamlegri samfélagslegri þátttöku.  

 Vonumst við til að sem flestir taki virkan þátt í verkefninu með því að bjóða íbúum  upp á heilsutengda viðburði, þjónustu eða varning þessa vikuna. Markmiðið er að heilsu-og forvarnarvikan sé fjölbreytt og höfði til sem flestra. Stofnanir Reykjanesbæjar taka þátt í verkefninu og er það von okkar að sem flest fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og íþrótta-og tómstundafélög sjái hag sinn í þátttöku verkefnisins.  

Skila þarf upplýsingum/dagskrá fyrir 25. september nk. til að vera með í viðburðardagatalinu. Til að skila inn efni er hægt að senda tölvupóst á forvarnir@reykjanesbaer.is 

Hafþór Birgisson 
íþrótta- og tómstundafulltrúi 

Guðrún Magnúsdóttir 
lýðheilsufulltrúi