Allir með í Heilsu- og forvarnarviku 3. - 9. október

Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ verður dagana 3. til 9. október 2016
Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ verður dagana 3. til 9. október 2016

Heilsu- og forvarnarvika Reykjanesbæjar fer fram dagana 3. – 9. október. Fyrirtæki, einstaklingar og stofnanir hafa sett saman metnaðarfulla dagskrá fyrir bæjarbúa Í dagskránni kennir ýmissa grasa, t.d. er ókeypis í fjölmarga tíma í Sporthúsinu og Lífsstíl.

Stofnanir Reykjanesbæjar taka virkan þátt með einum og öðrum hætti, m.a. með því að hvetja starfsfólk og nemendur til að huga að heilsunni. Bæjarbúum stendur til boða að láta heilsufarsmæla sig, þeir geta sótt áhugaverða fyrirlestra og margt annað skemmtilegt verður í boði.

Mánudaginn 3. október kl. 17:00 verður kynning í Stapa á heilsueflandi samfélagi og skrifað undir samning við embætti landlæknis um að Reykjanesbær muni verða heilsueflandi samfélag. Að auki mun Jón Sigfússon frá Rannsóknum og greiningu koma og kynna fyrir okkur nýjustu tölur um hagi og líðan ungmennanna okkar.

Dagskrá heilsu- og forvarnarvikunnar má nálgast hér fyrir neðan og á Fésbókarsíðu Íþrótta-, tómstunda og forvarna í Reykjanesbæ.