Alþjóðadagur kennara 5. október

Í dag er Alþjóðadagur kennara en honum hefur verið fagnað 5. október ár hvert síðan 1994. Stofnað var til hans að frumkvæði UNESCO og Alþjóðasamtaka kennara (Education International). 

Markmið dagsins er ávallt að vekja athygli á því mikilvæga starfi sem kennarar gegna í heiminum, en einnig að efla samtakamátt kennara og huga að því hvernig menntun kynslóða framtíðarinnar verði best háttað.

Að þessu sinni er yfirskrift dagsins „Gerum kennurum kleift að byggja upp sjálfbært samfélag“.

Reykjanesbær óskar kennurum á öllum skólastigum til hamingju með daginn.