Ársreikningur Reykjanesbæjar 2025

Betri rekstrarniðurstaða en gert var ráð fyrir á árinu 2025 hjá Reykjanesbæ

Ársreikningur Reykjanesbæjar 2025 var samþykktur að lokinni síðari umræðu í bæjarstjórn Reykjanesbæjar í dag 5. maí, 2026.

Jákvæða rekstrarniðurstaða nam 440 milljónum króna hjá bæjarsjóði Reykjanesbæjar og 2.254 milljónum króna í samanteknum ársreikningi. Er niðurstaðan mun betri frá því sem áætlað var fyrir árið 2025 og eru auknar útsvarstekjur að skýra frávik frá fjárhagsáætlun að stærstum hluta. Aukið veltufé frá rekstri var nýtt til innviðauppbyggingar vegna mikillar fjölgunar íbúa síðustu árin og í krefjandi viðhaldsverkefni á skólahúsnæði og öðru húsnæði stofnana vegna rakaskemmda. Fjárfestingar námu 4.566 milljónum króna og söluverð eigna 3 milljónum króna í A hluta bæjarsjóðs og námu fjárfestingar 7.925 milljónum króna og söluverð eigna 444 milljónum króna í samanteknum ársreikningi A og B hluta.

Heildartekjur samstæðu A og B hluta voru 42,4 milljarðar króna og rekstrargjöld 34,4 milljarðar króna. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir, fjármagnsliði, skatta og hlutdeild minnihluta nam 8 milljörðum króna. Að teknu tilliti til þeirra liða var niðurstaðan jákvæð um 2,254 milljónir króna en áætlun ársins gerði ráð fyrir 1,357 milljóna króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu hjá samstæðu sveitarfélagsins.

Heildartekjur A-hluta bæjarsjóðs námu 28,5 milljörðum króna. Rekstrargjöld bæjarsjóðs námu 26,3 milljörðum króna. Rekstarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði var jákvæð um 2,2 milljarða króna en að teknu tilliti til þeirra liða var niðurstaðan jákvæð um 440 milljónir króna.

Áætlun ársins með viðauka gerði hins vegar ráð fyrir 186 miljónum króna jákvæðri rekstrarniðurstöðu bæjarsjóðs og er þetta því betri niðurstaða. Munar þar mest um hærri útsvarstekjur en áætlað var enda er það stefna Reykjanesbæjar að áætla tekjur hóflega.

Eignir samstæðu A og B hluta nema 108 milljörðum króna og A-hluta bæjarsjóðs 59,6 milljörðum króna. Hreint veltufé frá rekstri nam 7,7 milljörðum króna i samstæðu og 3 milljörðum króna í bæjarsjóði. Lántökur á árinu 2025 námu 6,5 milljörðum króna og nema skuldir á hvern íbúa 1,585 þúsundir króna.

Skatttekjur og framlög úr jöfnunarsjóði námu 1.033 þúsund króna á hvern íbúa á árinu 2025 í stað 954 þúsund króna á árinu 2024.

Skuldaviðmið A hluta bæjarsjóðs skv. reglugerð 502/2012 er 104,85% og samstæðu A og B hluta 107,55%.

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri.