Áskorun til stjórnvalda

Mynd af ráðhúsinu
Mynd af ráðhúsinu

Áskorun til stjórnvalda um aðgerðir fyrir fólk utan vinnumarkaðar sumarið 2020

Reykjanesbær hefur sett á laggirnar atvinnuátakshóp vegna afleiðinga heimsfaraldursins Covid–19. Starfsemi atvinnuátakshópsins er skipt í fimm teymi og fer eitt þeirra með málefni náms, menntamála og starfsendurhæfingar. Það teymi er sett saman saman af helstu sérfræðingum menntamála á Suðurnesjum sem eru í ábyrgðarstöðum menntastofnana og starfsendurhæfingar. 

  • Dagný Gísladóttir, frá Heklunni og Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum
  • Guðjónína Sæmundsdóttir, forstöðumaður símenntunar á Suðurnesjum
  • Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, verkefnastjóri fjölmenningarmála hjá Reykjanesbæ
  • Inga Dóra Jónsdóttir, félagsráðgjafi hjá Velferðarsviði Reykjanesbæjar og sérfræðingur í starfsendurhæfingu
  • Jóhann Friðrik Friðriksson, framkvæmdarstjóri Keilis
  • Kristján Ásmundsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja
  • Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólameistari Fisktækniskóla Íslands

Skýrslan er samantekt á tillögum til aðgerða fyrir Suðurnes og lögð fram sem hvatning um að huga skuli að velferð íbúa Suðurnesja strax í sumar til þess að sporna við þeirri vegferð sem Suðurnesin eru nú á varðandi atvinnutækifæri á svæðinu. Hvatningunni er fyrst og fremst beint til ríkisstjórnar Íslands, Stjórnarráðsins og nefnda á vegum ríkisstjórnar og ráðuneyta, sem fjalla um málefni tengd Suðurnesjum. Teymið telur afar mikilvægt að brugðist sé við hratt og örugglega og  koma þarf sem mestu í framkvæmd fyrir markhópinn strax í sumar.

Það er von okkar  að þessi samstaða verði til þess að ákvarðanir verði teknar um aðgerðir sem styrkja innviði okkar með þeim hætti að það nýtist okkar fólki sem allra best, þ.e. íbúum Suðurnesja sem eru utan vinnumarkaðar.

Teymið sem leggur fram meðfylgjandi skýrslu lýsir sig reiðubúin til samtals um aðgerðir og samstarf um virkni og vellíðan íbúa Suðurnesja.


Smellið hér til að skoða skýrsluna