- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Kadeco, í samstarfi við Reykjanesbæ, býður til sölu byggingarrétt og lóðaleigu á 20 atvinnulóðum á Tæknivöllum á Ásbrú.
Um er að ræða 15 lóðir fyrir almennt atvinnuhúsnæði og 5 lóðir sem henta meðal annars fyrir lífræna ræktun og gróðurhús. Stærð lóða er á bilinu 2.100–10.600 fm.
Kadeco úthlutar lóðunum í samstarfi við Reykjanesbæ. Nánari upplýsingar um lóðirnar eru á vefsjá Kadeco og Reykjanesbæjar. Lögaðilar með skráð lögheimili og aðsetur innan EES geta sótt um lóðir, að uppfylltum skilyrðum. Leigutími lóðanna er 50 ár með möguleika á framlengingu.
Nánari upplýsingar um lóðirnar, úthlutunarreglur, gjaldskrá, umsóknarferlið og umsóknarform eru á vef Kadeco.
Umsókn og nánari upplýsingar