Auglýst eftir umsóknum í Menningarsjóð Reykjanesbæjar

Kjartan Már Kjartansson og Alexandra Chernyshova við afhendingu Súlunnar, menningarverðlauna Reykja…
Kjartan Már Kjartansson og Alexandra Chernyshova við afhendingu Súlunnar, menningarverðlauna Reykjanesbæjar fyrir árið 2020

Menningar- og atvinnuráð Reykjanesbæjar auglýsir eftir umsóknum um tvenns konar styrki sjóðsins. Um er að ræða þjónustusamninga við menningarhópa og verkefnastyrki til menningartengdra verkefna. Umsóknum þarf að skila rafrænt í síðasta lagi 14. febrúar næstkomandi í gegnum Mitt Reykjanes. Eftir innskráningu er smellt á Umsóknir á forsíðu og svo á viðeigandi umsókn undir Stjórnsýsla – Menningarmál.

Þjónustusamningar við menningarhópa

Ákveðnu fjármagni verður varið í þjónustusamninga við menningarhópa í bæjarfélaginu árið 2021 eins og verið hefur. Um ýmis konar þjónustu af hálfu menningarhópanna getur verið að ræða, s.s. þátttöku í viðburðum, námskeiðahald o.fl. í þeim dúr gegn ákveðinni greiðslu.

Hópar sem þegar eru með þjónustusamninga eru beðnir um að skila samantekt um starfsemi liðins starfsárs með umsókn sem rökstuðningi fyrir endurnýjun samnings.

Verkefnastyrkir til menningartengdra verkefna

Ákveðnu fjármagni verður varið í verkefnastyrki á árinu 2021 sem miða að því að hægt verði að fá fjármagn til einstakra menningarverkefna sem standa munu bæjarbúum til boða á árinu.

Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri Reykjanesbæjar í síma 421 6700.