Auglýst er eftir styrkumsóknum í Menningarsjóð Reykjanesbæjar

Frá einum menningarviðburða á Ljósanótt 2010.
Frá einum menningarviðburða á Ljósanótt 2010.

Menningarráð Reykjanesbæjar auglýsir eftir styrkumsóknum í Menningarsjóð Reykjanesbæjar. Annars vegar er um þjónustusamning að ræða og hins vegar verkefnastyrk.

1. Þjónustusamningar við menningarhópa 

Ákveðnu fjármagni verður varið í þjónustusamninga við menningarhópa í bæjarfélaginu árið 2018 eins og verið hefur. Um ýmis konar þjónustu af hálfu menningarhópanna getur verið að ræða s.s. þátttöku í viðburðum, námskeiðahald o.fl. í þeim dúr gegn ákveðinni greiðslu.

Hér má finna eyðublað á pdf formi. 

2. Verkefnastyrkir til menningartengdra verkefna

Ákveðnu fjármagni verður varið í verkefnastyrki á árinu 2018 sem miða að því að hægt verði að fá fjármagn til einstakra menningarverkefna sem standa munu bæjarbúum til boða á árinu.

Hér má finna eyðublað á pdf formi. 

Umsóknum skal skilað á netfangið menningarfulltrui@reykjanesbaer.is eða í ráðhúsið,Tjarnargötu 12 í síðasta lagi 5. febrúar n.k.