Aukið samstarf við Kölku

Til þess að tryggja samræmingu og gott samstarf á milli sveitarfélaganna á Suðurnesjum og Kölku hittust fulltrúar þeirra á fundi til þess að fara yfir þær breytingar sem fram undan eru í úrgangsmálum. Ný löggjöf hefur tekið gildi en henni fylgja töluverðar breytingar í bakvinnslu og því mikilvægt að samræma og reyna að sjá fyrir þær áskoranir sem fram undan eru til þess að þessi breyting gangi sem best fyrir sig fyrir íbúa á Suðurnesjum. Mikil vinna hefur verið lögð í að greina stöðuna eins og hún er í hverju sveitarfélagi fyrir sig og á fundinum var farið yfir hvert hlutverk sveitarfélaganna er í þessum breytingum og hvert hlutverk Kölku er.
 
Ljóst er að einhverjir íbúar munu þurfa að ráðast í breytingar á núverandi úrgangslausnum við sínar fasteignir og hvetjum við íbúa til þess að skoða það tímanlega.
 
Við fögnum þessari góðu samvinnu og hlökkum til áframhaldandi samstarfs á komandi mánuðum en árangur nýs flokkunarkerfis mun að miklu leyti byggja á samræmdum flokkunarleiðbeiningum og samvinnu okkar allra. Fyrir frekari upplýsingar um þær breytingar sem fram undan eru má meðal annars benda á þessa grein hér."