Aukning áskrifta skólamáltíða í Reykjanesbæ

Skólastelpur
Skólastelpur

Um 75% allra nemenda í grunnskólum Reykjanesbæjar sem eru nær 2000 talsins nýta sér að kaupa skólamáltíð í áskrift. Á sama tíma í fyrra var þetta hlutfall 70%, svipað og árin á undan. Þetta er því hærra hlutfall en verið hefur undanfarin ár.
Árni Sigfússon bæjarstjóri sagði á íbúafundi í Innri Njarðvík, s.l. mánudagskvöld, að bærinn fylgdist með þessum tölum til að meta hvort efnahagsþrengingar kæmu niður á börnunum með færri skólamáltíðum. Svo reyndist ekki vera. 
Í kynningu bæjarstjóra kom fram að verð á heitum skólamáltíðum í áskrift hjá Reykjanesbæ er 275 kr. á nemanda. Samkvæmt samanburðartölum sem kynntar voru, er þetta með því allra lægsta sem máltíð kostar í skólum landsins. Reykjanesbær greiðir um 224 kr. niður með hverri skólamáltíð barna.