Bæjar- og sveitarstjórnum nú heimilt að halda fjarfundi

Bæjarstjórnarfundur
Bæjarstjórnarfundur

Með breytingu á lögum er bæjar- og sveitarstjórnum nú heimilt að halda fjarfundi. Þetta á einnig við um nefndir og ráð. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á aukafundi sínum í gær, 24. mars 2020, slíka heimild og tekur hún strax gildi. Jafnframt voru samþykktar leiðbeiningar um hvernig slíkir fundir skuli fara fram. Nefndum og ráðum er því heimilt að halda fjarfundi frá og með deginum í dag, 25. mars, og skulu fylgja tilteknum leiðbeiningum.

Fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, sem fram fer á morgun, fimmtudaginn 26. mars verður í fjarfundaformi.