Bæjarfulltrúar taka undir áhyggjur annarra íbúa af mengun frá USi

Frá íbúafundi í Stapa 14. desember sl. sem haldinn var af bæjaryfirvöldum vegna ófyrirséðrar mengun…
Frá íbúafundi í Stapa 14. desember sl. sem haldinn var af bæjaryfirvöldum vegna ófyrirséðrar mengunar frá kísilverksmiðju United Silicon.

Bæjarfulltrúar tóku á bæjarstjórnarfundi í gær undir áhyggjur annarra íbúa af þeirri mengun sem komið hefur frá kísilverksmiðju United Silicon (Usi) í Helguvík og athugasemdir þeim tengdum. Enn berast kvartanir til Umhverfisstofnunar vegna lykt- og loftmengunar frá verksmiðjunni. Fulltrúar Usi og Umhverfisstofnunar munu koma á fund bæjarráðs 2. mars nk.

Nokkrar umræður urðu á bæjarstjórnarfundi í gær vegna verksmiðju United Silicon í Helguvík eftir að Guðbrandur Einarsson forseti bæjarstjórnar opnaði umræðuna. Lýstu bæjarfulltrúar m.a. yfir þungum áhyggjum af því hversu brösuglega starfsemin hefur gengið frá upphafi. Verksmiðjan var gangsett um miðjan nóvember sl. Á fundinum í gær lagði bæjarstjóri til að hann myndi kalla fulltrúa United Silicon og Umhverfisstofnunar á fund bæjarráðs sem fyrst og var það samþykkt. Fulltrúi frá Usi og Umhverfisstofnun munu koma á fund bæjarráðs 2. mars nk. til þess að skýra sín sjónarmið. Bæjarfulltrúar vilja gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stöðva þá ófyrirséðu  mengun frá verksmiðunni sem torvelt virðist að lágmarka, en var í upphafi útskýrð sem byrjunarörðugleikar.