Bæjarráð Reykjanesbæjar harmar stöðvun á starfsemi WOW Air

Ein af flugvélum WOW air. Ljósmynd af turisti.is
Ein af flugvélum WOW air. Ljósmynd af turisti.is

Bæjarráð Reykjanesbæjar sendi frá sér bókun vegna WOW Air á fundi ráðsins í morgun.

Í bókuninni segir: „Bæjarráð harmar að starfsemi WOW Air hafi verið stöðvuð. Ljóst er að þetta áfall mun hafa mikil samfélagsleg áhrif til skamms tíma, ekki síst fyrir Reykjanesbæ þar sem mikill fjöldi starfsmanna býr. Bæjarráð leggur áherslu á að hugað sé að velferð og hagsmunum allra starfsmanna og fyrirtækja sem þetta mun hafa áhrif á.“