Bæjarstjórn ályktar um Landhelgisgæsluna

Landhelgisgæslan á Keflavíkurflugvöll
Kostnaður við rekstur atvinnumannaliðs er meiri en núverandi fyrirkomulag hvar sem staðsetningin er.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir vonbrigðum með niðurstöður Innanríkisráðuneytisins vegna hagkvæmnisathugunar Deloitte á kostnaði við að flytja Landhelgisgæsluna á öryggissvæðið á
Keflavíkurflugvelli.

Í könnun Deloitte er kostnaður við rekstur gæslunnar eins og hann er í dag, þar sem fyrirkomulag áhugamannaliðs er við líði, starfsmenn á bakvöktum og útkallstími því umtalsverður, borin saman við rekstur atvinnumannaliðs þar sem starfsmenn eru á vakt öllum stundum, starfsmannafjöldi langtum meiri og útkallstími því miklu styttri.

Enn fremur er gert ráð fyrir að ríkissjóður þurfi að greiða starfsmönnum laun og bílastyrki fyrir að aka til vinnu í Reykjanesbæ, greiðslur sem Suðurnesjamenn þekkja ekki til að fá greiddar þrátt fyrir störf á höfuðborgarsvæðinu.

Sá kostnaður sem Deloitte telur að hljótist af flutningi gæslunnar til Suðurnesja er því ekki vegna flutningsins heldur vegna þeirrar hugmyndar að stórauka starfsemi gæslunnar, fjölga starfsmönnum og auka öryggi þeirra sem þurfa á þjónustu gæslunnar að halda.

Ekki er lagt mat á að með flutningunum mun rekstur og þjónusta gæslunnar aukast, styttra er á þjónustusvæði gæslunnar frá Reykjanesbæ. Ekki er heldur lagt mat á að húsakostur sá er Landhelgisgæslunni stendur til boða á Keflavíkurflugvelli er í raun eins og hannaður fyrir það hlutverk sem hún á að sinna. Þá eru þau verkefni sem áður voru hjá Varnarmálastofnun og Landhelgisgæslan sinnir nú, í uppnámi og hætta er á að þau störf flytjist úr landi, sinni Landhelgisgæslan þeim ekki.

Bæjarstjórn telur mikil tækifæri felast í að láta Landhelgisgæsluna taka yfir störf fyrrum Varnarmálastofnunar og telur ófært að hagkvæmnisathugun sem nú virðist liggja fyrir skuli ekki taka til þess þáttar einnig.

Mikilvægt er að samráðsvettvangur stjórnvalda og sveitarfélaga á Suðurnesjum fari rækilega yfir þá vinnu sem þegar hefur verið lögð fram og vinni áfram að því að fullgera hagkvæmnisathugun þar sem samræmis er gætt í samanburðartölum og allir kostir verkefnisins eru skoðaðir og metnir.

Ályktunin var undirrituð af öllum bæjarfulltrúum.