Bæjarstjórn heiðrar starfsmenn sem hætt hafa störfum á kjörtímabilinu

Frá samkomunni í Hljómahöll.
Frá samkomunni í Hljómahöll.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hélt á dögunum starfslokaboð fyrir starfsmenn Reykjanesbæjar sem hætt hafa störfum hjá bæjarfélaginu á kjörtímabilinu.

Að þessu sinni var óvenjustór hópur heiðraður þar á meðal fjöldi grunnskólakennara sem nú ljúka störfum störfum eftir margra áratuga starf í þágu bæjarbúa og nemenda.

Aldursforsetinn að þessu sinni var þó Karl Geirsson sem starfaði á Þjónustumiðstöðinni en hann hafði starfað í 53 ár og 2 mánuði þegar hann lauk störfum.

Árni Sigfússon bæjarstjóri og Björk Guðjónsdóttir forseti bæjarstjórnar afhentu starfsmönnum glergripinn Skessutárið og var þeim boðið ásamt fjölskyldum að þiggja veitingar í boði bæjarstjórnar.

Starfsmönnunum er þökkuð óeigingjörn störf í þágu bæjarbúa á liðnum árum og óskað velfarnaðar í þeim verkefnum sem þeir taka sér fyrir í framtíðinni.

starfsmenn RNB