Bæjarstjórn Reykjanesbæjar mun vinna saman að mótvægisaðgerðum vegna gjaldþrots WOW Air

Ein af vélum WOW Air. Ljósmynd turisti.is
Ein af vélum WOW Air. Ljósmynd turisti.is

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsti yfir ánægju með hversu hratt og vel hafi gengið að bregðast við þeim mikla vana sem hefur skapast eftir gjaldþrot WOW Air, á bókun sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar í gær. 

Bókunin sem bæjarstjórn lagði fram er eftirfarandi:

„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir ánægju sinni með hversu hratt og vel hefur verið brugðist við þeim mikla vanda sem hefur skapast í kjölfar þess að WOW Air var lýst gjaldþrota.

Ríkisstjórn, þingmenn, sveitarstjórnir, stéttarfélög og margir fleiri brugðust strax við, til þess að lágmarka þann skaða sem óneitanlega fylgir þegar um svo margar uppsagnir er að ræða og til þess að halda utan um þann stóra hóp fjölskyldna sem misst hefur lífsviðurværi sitt.

Sveitarfélagið hefur nú þegar brugðist við og hefur myndað aðgerðahóp til þess að meta stöðuna frá degi til dags. Þar verður sérstaklega horft til þess að koma í veg fyrir að þessi staða hafi neikvæð áhrif á börn og ungmenni sveitarfélagsins. Stéttarfélög hafa lýst sig reiðubúin til að lána starfsmönnum WOW Air sem ekki fengu greidd laun um mánaðarmótin auk þess sem ríki hefur lagt aukna fjármuni til Vinnumálastofnunar. Einnig er ljóst að styrkja þarf atvinnuleysistryggingasjóð og ábyrgðarsjóð launa sem ábyrgist launagreiðslur við gjaldþrot fyrirtækja í framhaldi.

Samstillt átak af þessu tagi er ánægjulegt og mun leiða til þess að árangri verði náð fyrr en ella hefði verið. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar mun standa þétt saman og vinna með nágrannasveitarfélögum og ríki að mótvægisaðgerðum eins og þurfa þykir.“

Bæjarfulltrúar Beinnar leiðar, Frjáls afls, Framsóknarflokks, Miðflokks, Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks.