- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Gróðursetning á BAUN, barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ hefur verið árlegur viðburður síðustu fjögur ár. Við leiksvæðið í Njarðvíkurskógum hefur smám saman vaxið upp sérstakur BAUNaskógur þar sem yngstu íbúarnir fá að gróðursetja sína eigin óskaBAUN og fylgjast með henni vaxa og dafna.
Starfsfólk Umhverfismiðstöðvar sá um viðburðinn fyrir hönd sveitarfélagsins þar sem börnin fengu aðstoð við gróðursetninguna, fræðslu um rétt handtök og mikilvægi skógræktar.
Stemningin í kringum verkefnið hefur verið einstaklega góð og BAUNaskógurinn tekur sífellt meiri mynd. Í fyrsta sinn í ár fékk sveitarfélagið styrk frá Hotel Marriott til plöntukaupa og hafa nú yfir 2.000 plöntur verið gróðursettar á svæðinu. Verkefnið hefur þannig orðið að árlegri vorhefð og BAUNaskógurinn heldur áfram að stækka.
Það er ánægjulegt að sjá börnin taka þátt í að gera bæinn okkar grænni og leggja sitt af mörkum til umhverfisins. Við hlökkum mikið til að fylgjast með BAUNaskóginum stækka á komandi árum!