Birta Rós með burtfarartónleika

Birta Rós Arnórsdóttir, sópran, mun halda burtfarartónleika sína frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar miðvikudaginn 21. maí kl.20.00 í Bergi, Hljómahöll. Birta Rós hóf söngnám við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar árið 2008 undir handleiðslu Dagnýjar Þ. Jónsdóttur, sem hefur verið kennari hennar síðan. Þar áður stundaði hún píanónám við Tónlistarskólann í Garði. Birta Rós syngur með Kór Söngdeildar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar auk þess sem hún hefur oft komið fram sem einsöngvari á vegum skólans við hin ýmsu tækifæri. Birta Rós er félagi í Kvennakór Suðurnesja og hefur komið fram sem einsöngvari með kórnum.