Blómstrandi gleðifréttir frá Tjarnarseli

Leikskólinn Tjarnarsel
Leikskólinn Tjarnarsel

Frá árinu 2018 hefur Tjarnarsel tekið þátt í alþjóðlegu ERASMUS samstarfsverkefni ásamt Menntamálastofnun og Landvernd við gerð námsefnis í tengslum við verkefnið Skólar á grænni græn. Þátttökulönd í verkefninu voru auk Íslands; Eistland, Lettland og Slóvenía. Markmið Skóla á grænni grein verkefnisins er að auka umhverfisvernd, menntun til sjálfbærni og styrkja umhverfisstefnu hjá skólum.

Tjarnarsel kynnir með stolti samstarfsútgáfu á rafbókinni Lifandi náttúra; Lífbreytileiki á tækniöld. Þetta er verkefnabók sem er sérstaklega ætluð leikskólum og yngsta stigi grunnskóla.

Í verkefnunum var meðal annars lögð áhersla á að færa ræktunarstarf inn í leik- og kennslustofur með ræktun pottaplantna en um leið að auka útikennslu og útiveru. Verkefnin eru að mestu leyti verkleg. Aðalatriðið er að nemendur taki virkan þátt, læri um, upplifi og uppgötvi lífríkið í sínu nærumhverfi.

Erasmus verkefnið hefur styrkt, auðgað og hvatt starfsfólk Tjarnarsels áfram í starfi sem unnið hefur verið að undanfarin ár í skólanum. Þetta á meðal annars við í vettvangsferðum, útinámi og orðaforðaaðferðinni Orðaspjalli. Það er von okkar að bókin geti verið kennurum, foreldrum og nemendum uppspretta að fjölbreyttum og lifandi námstækifærum.