Börn eru líka ferðamenn!

Svona líta bæklingarnir út.
Svona líta bæklingarnir út.

Tveir nýir bæklingar hafa komið út þar sem íslenskum ferðamönnum og auðvitað heimamönnum líka, er bent á áhugaverða staði í bæjarfélaginu og næsta nágrenni, hvað hægt er að gera og hvert er hægt að fara.

Annar bæklingurinn er sérstaklega ætlaður börnum og þar er bent á fjölda skemmtilegra tækifæra sem hægt er að njóta án mikilla fjárútláta, flestir staðirnir eru meira að segja alveg ókeypis fyrir börnin.

Hægt er að nálgast þessa bæklinga hér að neðan á pdf formatti, á Markaðsstofunni og helstu ferðamannastöðum bæjarins s.s. Víkingaheimum og Duushúsum.