Nú er hægt að skoða heiminn í nýju ljósi við Bakkalág.
Verkið „Að horfa á heiminn í nýju ljósi“ var sett upp á túninu við Duustorg á nýliðinni barnahátíð og hefur vakið mikla athygli, sérstaklega hjá ungum íbúum í Reykjanesbæ.
Verkið er gert úr fjórum litum af plexígleri og ryðfríu stáli. Hugmyndin er að börn og fullorðnir geti horft áumhverfið í gegnum litina: rauðan, gulan, grænan og bláan og séð hvernig það breytist.
Verkið er eftir listamanninn Guðmund Rúnar Lúðvíksson en Reykjanesbær kostaði smíði og uppsetningu verksins sem var smíðað hjá blikksmiðju Ágústar í Reykjanesbæ.