Breytingar á akstri Strætó á Suðurnesjum

Strætó hefur endurskoðað leiðir 55, 88 og 89 sem aka um og frá Suðurnesjum og aðlagað þær betur að þörfum farþega. Breytingarnar taka gildi 1. febrúar og eru gerðar eftir ábendingum frá farþegum, sveitarfélögum og akstursaðilum.

Margvíslegar breytingar voru gerðar og má þar helst nefna fjölgun stoppistöðva, fleiri ferðir, styttri biðtíma, betri brottfarartíma fyrir þarfir notenda, færri skiptingar og fleiri ferðir sem aka á Umferðarmiðstöð, í stað þess að enda í Firði.

Allar nánari upplýsingar um breytingarnar eru að finna á strætó.is