- Þjónusta
- Stjórnsýsla
Þú getur notað Google til að þýða þessa vefsíðu. Við tökum enga ábyrgð á nákvæmni þýðingarinnar. Þjónustan notar vafrakökur til þess að bæta upplifun notenda.
Í upphafi árs tóku gildi ný lög um meðhöndlun úrgangs á Íslandi. Í þeim er kveðið á um að flokka eigi í fjóra flokka við hvert heimili og fleiri flokka á grenndarstöðvum. Hvað þýðir þetta fyrir hinn almenna íbúa á Suðurnesjum?
Í sérbýlum verða þrjár tunnur við hvert heimili en í fjölbýlum verða mismunandi útfærslur eftir aðstæðum á hverjum stað fyrir sig. Meginmarkmiðið verður þó að fjölga tunnum eins lítið og hægt er. Íbúar þurfa ekki að panta nýjar tunnur fyrir utan heimili sín en gera þarf ráð fyrir auknum fjölda tunna og því gott að huga að því í tíma. Breytingarnar kalla einnig á nýja flokkunarsiði inni á heimilum og því þarf að huga að því hvernig flokkunum verði komið fyrir.
Helsta breytingin er sú að nú hefst söfnun á matarleifum á Suðurnesjum og munu öll heimili fá körfu og bréfpoka til að safna þeim í eldhúsinu hjá sér. Allur lífræni eldhúsúrgangurinn sem safnast fer svo í gas- og jarðgerðarstöðina GAJU þar sem honum verður umbreytt í metangas og jarðvegsbæti (moltu).
Mikilvægt er að notaðir séu bréfpokar undir þennan úrgangsflokk þar sem þeir jarðgerast mun betur en aðrar tegundir poka sem prófaðir hafa verið.
Önnur breyting er sú að nú verður pappi / pappír aðskilinn frá plasti og þessum flokkum safnað í sitthvora tunnuna. Þegar breytingin hefur tekið gildi verður einnig óheimilt að setja málma í endurvinnslutunnurnar við heimili en tekið er á móti málmum á grenndarstöðvum sem má finna víðsvegar um Suðurnes.
Tvískiptar tunnur verða við sérbýli þar sem matarleifum verður safnað í annan hluta tunnunnar og blönduðum úrgangi í hinn. Við fjölbýli eru nokkrar útfærslur en ein þeirra er að matarleifum verður safnað í minni tunnu.
Tunnurnar sem eru til staðar í dag verða nýttar áfram, önnur þeirra verður nýtt undir pappír & pappa og hin fyrir plast.
Allar tunnur verða merktar með samræmdum merkingum frá FENÚR og mun litur tunnunnar ekki skipta máli – það eina sem skiptir máli verður merkingin á tunnunni.
Mikilvægt er að flokka rétt í tunnurnar til að skemma ekki endurvinnsluefnin sem verið er að safna. Betra er því að vanflokka en rangflokka til að tryggja gæðin á endurvinnsluefnunum. Íbúar eru einnig hvattir til að nýta sér leitarvélina inná vefnum www.flokkum.is en þar er hægt að slá inn úrgangsefni og sjá í hvaða flokk það á að fara og verða þannig enn betri í að flokka.
Grenndarstöðvar verða áfram nýttar og mikilvægt að fara þangað með þá úrgangsflokka sem ekki er safnað við heimilin. Þeir úrgangsflokkar sem safnað verður á grenndarstöðvum eru málmar, gler og textíll en þetta eru mikilvægir úrgangsstraumar sem ekki eiga heima í tunnunni með blönduðum úrgangi.