Breytingar gerðar á dreifingu Fréttablaðsins í Reykjanesbæ

Breytingar verða gerðar á frídreifingu Fréttablaðsins og lausasölu um mánaðarmótin þannig að blaðinu er dreift ókeypis í lúgur og svokallaða Fréttablaðskassa á kjarnadreifingarsvæði, en annars staðar verður blaðið selt á kr. 150 eintakið.

Settir verða upp fréttablaðakassar í völdum hverfum í Reykjanesbæ í framhaldi.

Kjarnasvæði Fréttablaðsins er höfuðborgarsvæðið, Akureyri, Stokkseyri, Eyrarbakki, Hveragerði, Selfoss, Borgarnes, Akranes, Reykjanesbær, Þorlákshöfn, Keilir, Garður, Sandgerði, Grindavík og Vogar. Á þessu svæði verður blaðinu hér eftir sem hingað til ýmist dreift frítt í lúgur eða í Fréttablaðskassa sem staðsettir eru á völdum stöðum inni í íbúðahverfum. Nýbreytnin í dreifingu á kjarnasvæðum felst í að hætt verður frídreifingu í verslunum og á bensínstöðvum en blaðið í staðinn selt í lausasölu á sömu stöðum. Um leið verður lausasölustöðum fjölgað til muna auk þess sem fjöldi Fréttablaðskassa í íbúðahverfum verður rúmlega þrefaldaður og fer úr u.þ.b. 60 í um 170 talsins.

Þessar breytingar á dreifingu Fréttablaðsins koma í kjölfar breytinga sem voru innleiddar sl. vetur þegar lausasala var tekin upp í verslunum víða um land utan kjarnasvæðis. Samhliða því að blaðið verður nú selt í verslunum, bensínstöðvum og víðar á kjarnasvæði verður gert átak í að fjölga lausasölustöðum utan kjarnasvæðis og aðgengi að blaðinu þannig bætt stórlega. Þetta fyrirkomulag dreifingar hefur gefist mjög vel og til marks um það hefur lestur blaðsins aukist um 4,2 prósentustig frá því að lausasala blaðsins var tekin upp á landsbyggðinni.
Þessu til viðbótar verða á ýmsum stöðum, til dæmis á flugvöllum og í öðrum samgöngumiðstöðvum, settir upp sjálfsalar þar sem hægt verður að nálgast blaðið með einföldum og þægilegum hætti. Sama verð mun gilda á öllum sölustöðum, kr. 150.

Þessar breytingar eru liður í að auka hagræði í útgáfu og dreifingu blaðsins. Það fellur vel að því grunnstefi í útgáfu blaðsins að hitta sem flesta lesendur heima eða þar sem það er mögulegt vegna kostnaðar. Á öðrum stöðum er blaðið aðgengilegt gegn vægu gjaldi. Með þessu móti er einnig hægt að þjóna lesendum blaðsins betur, nú þegar sumarleyfistíminn gengur í hönd og landsmenn eru í auknum mæli á faraldsfæti.

Fréttablaðinu er ekki dreift ókeypis til fyrirtækja. Þeim stendur til boða, rétt eins og heimili sem ekki fá blaðið frítt inn um lúguna, að kaupa blaðið í áskrift, fyrir kr. 2.890 á mánuði sem er mun hagkvæmari kostur en lausasala. Póstsending Fréttablaðsins utan höfuðborgarsvæðisins er háð dreifingarsvæði Pósthússins og dreifingaráætlun Íslandspósts utan þess.
Fréttablaðið er gefið út daglega í um 90 þúsund eintökum og stendur ekki til að minnka það upplag. Auk þess er Fréttablaðið aðgengilegt ókeypis á rafrænu formi á visir.is. Þá geta lesendur fengið blaðið sent í tölvupósti alla útgáfudaga og án endurgjalds.
Nánari upplýsingar um dreifingu Fréttablaðsins má nálgast á www.visir.is/dreifing eftir 1. júní.
Frekari upplýsingar veitir Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, í síma 6691218.