Hvað eiga lummur, löggur, tröllastelpa og silent diskó sameiginlegt?
Jú, eru öll á dagskrá BAUNarinnar um helgina. Síðari helgi BAUNar er framundan með frábærri dagskrá. Meðal þess sem boðið verður upp á er þrautabraut í íþróttahúsi Akurskóla þar sem félagar úr Latabæ koma í heimsókn, bragðarefsgerð í Brúnni, skynjunarleiki fyrir yngstu börnin, Baunaarmbanda- og seglasmiðjur, Skessulummur í Skessuhelli þangað sem Fjóla tröllastelpa kíkir í heimsókn og Fjölskyldufjör í Fjörheimum.
BAUNinni lýkur svo á sunnudag með heilmiklu fjöri í og við Hljómahöll þar sem hægt verður að smella sér í geggjað Silent Diskó og lögreglan og slökkviliðið taka á móti gestum í sólskinsskapi fyrir utan. Hægt verður að skoða bílana þeirra og þá eru gestir líka hvattir til að taka reiðhjólin sín með og fá reiðhjólaskoðun frá lögreglunni.
Strætó gengur alla helgina
Minnt er á að frítt er í strætó á BAUN og hann gengur bæði laugardag og sunnudag til að sem flestir geti notið alls þess sem BAUNin býður upp á.
Setjið BAUNabréfið í lukkupottinn
Minnt er á að þátttökuseðlinum úr BAUNabréfinu þarf að skila í síðasta lagi 18. maí til að eiga möguleika á að verða dreginn úr lukkupottinum þar sem m.a. verður hægt að vinna trampólín. Tekið er við bréfinu í Duus safnahúsum, í Bókasafni Reykjanesbæjar - Stapasafni og í Sundmiðstöðinni – Vatnaveröld.