- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Reykjanesbær hefur tekið við umsjón Vatnsholtsins af Skógræktarfélagi Suðurnesja sem hefur sinnt svæðinu undanfarna áratugi. Á þeim tíma hefur félagið unnið þar mikið og öflugt starf sem gert hefur Vatnsholtið að vinsælum útivistarstað fyrir íbúa Reykjanesbæjar.
Við yfirtöku svæðisins var ákveðið að leita eftir sjónarmiðum íbúa um framtíð og nýtingu Vatnsholts. Alls tóku 364 íbúar þátt í könnun þar sem spurt var um hvernig þeir nýta svæðið í dag og hvaða áherslur þeir vilja sjá í áframhaldandi uppbyggingu þess.
Niðurstöðurnar sýna að Vatnsholtið er mikið nýtt útivistarsvæði. Sjötíu prósent svarenda sögðust heimsækja svæðið vikulega eða mánaðarlega og tólf prósent fara þangað daglega. Flestir heimsækja svæðið til að ganga um það, njóta útiveru og náttúrunnar eða eiga þar samverustundir með fjölskyldu og vinum.
Þegar spurt var um framtíð Vatnsholtsins voru svörin skýr. Langflestir vilja að svæðið verði áfram skógi vaxið útivistarsvæði með góðu aðgengi og aðstöðu til samveru, leikja og hvíldar.
Í ljósi niðurstaðna könnunarinnar hefst skipulags- og undirbúningsvinna í haust. Unnið verður að því að bæta aðgengi að skóginum, leggja stíga, fjölga áningarstöðum og samverusvæðum, bæta lýsingu og grisja skóg þar sem þess er þörf. Við framkvæmdina verður leitast við að raska núverandi skóglendi sem minnst og byggja áfram á því góða starfi sem unnið hefur verið í Vatnsholtinu.