Enginn kynbundinn launamunur hjá Reykjanesbæ.

Starfsfólki Reykjanesbæjar er ekki mismunað eftir kyni.
Starfsfólki Reykjanesbæjar er ekki mismunað eftir kyni.

Í kjölfar könnunar BSRB, sem sýnir að óútskýrður kynbundinn launamunur hjá hinu opinbera nemur í dag 13,1% og hefur aukist frá síðustu könnun, óskaði Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ eftir upplýsingum frá starfsþróunarstjóra bæjarins um mögulegan kynbundinn launamun hjá bænum. Í svari starfsþróunarstjóra kemur fram að markvisst hefur verið unnið að því að útrýma kynbundnum launamun og er fullyrt að enginn kynbundinn launamunur sé í störfum hjá Reykjanesbæ.  „Þetta er í samræmi við þá stefnu sem við höfum haft hér og unnið markvisst að, hlutfall karla og kvenna í æðstu stjórnunarstöðum er jafnt og kynbundinn launamunur í kerfinu, hvort sem er í grunnskólum, leikskólum, íþróttahúsum, félagsþjónustu eða annars staðar, á ekki að fyrirfinnast og fyrirfinnst ekki. Engar yfirvinnugreiðslur eru umfram hjá körlum en konum og engar aukagreiðslur þekkjast til karla umfram konur í störfum þar sem bæði kynin starfa“.