Hverfahleðslur opnaðar við Stapaskóla

Hverfahleðslur opnaðar við Stapaskóla

Nú hafa verið opnaðar tvær hverfahleðslustöðvar við Stapaskóla í Innri Njarðvík. Þar er nú hægt að hlaða fjórar bifreiðar samtímis og er þetta fjórða staðsetningin af þeim fjölmörgu sem væntanlegar eru í Reykjanesbæ.

Orka Náttúrunnar sér um rekstur stöðvanna og bendum við íbúum á að allar upplýsingar má nálgast á heimasíðu þeirra eða í ON appinu. Í ON appinu má einnig sjá allar þær stöðvar sem eru komnar í gagnið ásamt hvar eru lausar stöðvar hverju sinni.

Nánari upplýsingar um uppbyggingu á hverfahleðslum í Reykjanesbæ má finna hér.

 

Hvað eru hverfahleðslur?

Hverfahleðslur eru AC hleðslustöðvar með allt að 22kW afli og eru staðsettar í alfaraleið fyrir rafbílaeigendur. Þessar hleðslustöðvar eru hugsaðar þannig að auðvelt sé að hlaða þegar fólk er á ferðinni yfir daginn en einnig að þær nýtist nærliggjandi íbúðum og þannig sé komið til móts við fólk sem ekki hefur tök á að hlaða heima fyrir.

Við þökkum fyrir frábærar viðtökur á þeim stöðvum sem nú þegar eru komnar í notkun og hlökkum til áframhaldandi uppbyggingar í átt að orkuskiptum.