- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Það má með sanni segja að BAUNin hafi blómstrað á nýafstaðinni Barna- og ungmennahátíð sem lauk í gær, sunnudag. Bærinn hreinlega iðaði af lífi og fjöri þar sem börn með BAUNabréf í hönd streymdu á milli staða, full eftirvæntingarum að taka þátt í hinum ýmsu verkefnum og fá að launum stimpil í bréfið sitt.
Á þeim ellefu dögum sem hátíðin stóð yfir var boðið upp á ýmiss konar þrautastöðvar, stimpilstöðvar og viðburði fyrir þátttakendur. Yfirfullt var á flestum stöðvunum og engu máli skipti hvort um var að ræða laugardagsmorgna eða mánudagseftirmiðdaga. Því má glöggt sjá að börn og fjölskyldur þeirra tóku BAUNinni heldur betur fagnandi.Stofnanir Reykjanesbæjar lögðu sitt af mörkum til hátíðarinnar og ljóst er að þar leynast mikil tækifæri til að standa reglulega fyrir viðburðum og dagskrá fyrir yngstu íbúa bæjarins og fjölskyldur þeirra.
Þátttökuverðlaun
Framundan er að draga úr innsendum BAUNabréfum og er til mikils að vinna en vinningshafar geta unnið trampólín í boði Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ og Reykjanesbæjar auk annarra glæsilegra vinninga. Tekið verður við BAUNabréfum til 17. maí í Duus safnahúsum, Bókasafni Reykjanesbæjar, Stapasafni og í Sundmiðstöðinni Vatnaveröldog Stapalaug. Dregið verður úr innsendum bréfum í beinu streymi á Facebook síðuBAUNar föstudaginn 22. maí kl. 14:00. Þátttökuseðlinum má skila óháð því hversu mörgum stimplum var safnað.
Markmið hátíðarinnar eru þau að auka lífsgæði og vellíðan barna og íbúa Reykjanesbæjar og jafnframt að skapa vettvang fyrir börn og fjölskyldur til virkrar þátttöku í samfélaginu. Það er von okkar að það hafi tekist og að börn og fjölskyldur hafi átt frábærar stundir saman á BAUN.
Við viljum heyra frá ykkar upplifun af þátttökunni á BAUN í ár og hvetjum ykkur því til að svara könnuninni hér: https://zfrmz.eu/ANwZoNXeIPQpklBD5ced
Ef fólk vill koma á framfæri athugasemdum eða öðru sem við kemur BAUN þá er snjallt að senda línu á menningarfulltrui@reykjanesbaer.is