Er barnið þitt efni í kvikmyndaleikara?

Sunnudaginn 26. júní nk. verða haldnar leikaraprufur fyrir drengi á aldrinum 6-7 ára vegna fyrirhugaðrar kvikmyndar sem tekin verður upp á Suðurnesjum í september og október. Skilyrði er að barnið búi á Reykjanesi. Prufurnar fara fram í Njarðvíkurskóla milli 14:00 og 16:00.

Um er að ræða burðarhlutverk í kvikmyndinni „Andið eðlilega“, í leikstjórn Ísoldar Uggadóttur og framleiðslu Zik Zak kvikmynda.

Kvikmyndin fjallar um einstæða móður á Reykjanesi sem tengist erlendri flóttakonu óvæntum böndum.

Prufurnar munu fara fram í Njarðvíkurskóla sunnudaginn 26. júní n.k. milli kl. 14 og 16.
Foreldrar eru hvattir til að mæta með áhugasama drengi á aldrinum 6-7 ára.

Frekari upplýsingar veitir Tinna Hrafnsdóttir í netfanginu andidedlilega@zikzak.is.

Ljósmynd með frétt: Víkurfréttir